Lögreglan óskar eftir vitnum að því þegar ekið var á dreng

Lögreglan á Akureyri

Lögreglan á Akureyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér tilkynningu á Facebook í dag þar sem ítrekuð er beiðni eftir vitnum af árekstri sem var þann 16. desember. Í tilkynningunni segir meðal annars að atvikið hafi átt sér stað við Múlasíðu þann 16 desember um klukkan 21:00.

Þar var ekið utan í dreng og hann slasaðist. Bifreiðinni var síðan ekið á brott, hugsanlega er um að ræða ljósgráan skutbíl, mögulega Skoda-bifreið.

Ef fólk hefur einhverjar upplýsingar um málið er því bent á að hafa samband við Lögregluna á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó