KIA

Moses Hightower á Græna hattinn

Moses Hightower

Moses Hightower

Nú gleðjast eflaust margir tónlistarunnendur því hljómsveitin Moses Hightower hafa boðað komu sína á Græna Hattinn þann 24. nóvember.

Hljómsveitin hefur nú í tæpan áratug verið helsti kyndilberi sálarskotinnar dægurtónlistar á klakanum, eða allt síðan dúnmjúki valsinn „Búum til börn“ tók að heyrast á öldum ljósvakans árið 2008. Fljótlega eftir það leit dagsins ljós samnefnd plata, og voru gagnrýnendur og hlustendur sammála um að hér kvæði við nýjan tón í íslenskri tónlist. Útsetningar, hljóðheimur og spilamennska sóttu óspart í sálartónlist 7. og 8. áratugar, en textar þóttu minna á íslenskt lopapeysupopp frá sama tímabili, ekki síst Spilverk þjóðanna. Í öllu falli var plötunni tekið fagnandi, og lögin „Vandratað“ og „Bílalest út úr bænum“ hljómuðu látlaust úr viðtækjum landsins.

Önnur Mósebók fylgdi í kjölfarið, og sá angurværi og indískotnari tónn sem þar kvað við virtist falla í kramið hjá skammdegisþjóðinni. Platan hlaut fjölda verðlauna, mikla útvarpsspilun, og fór að endingu í gull.

Nú er þriðja platan í ofninum, og eru Mosespiltar æstir í að kynna Akureyringa fyrir nýju lögunum, í bland við lummur á borð við „Stutt skref“, „Háa C“ og „Sjáum hvað setur“. Hljómsveitin leggur mikinn metnað í lifandi flutning, og hefur að auki sérlegar mætur á Græna hattinum, og er því staðráðin í að gera kvöldið sem ógleymanlegast.

UMMÆLI