Myndir: MBS fór fram í níunda sinn um síðustu helgi

Mannfólkið breytist í slím fór fram á Akureyri um liðna helgi, 16. – 18. júlí. Fram komu 18 atriði sem spanna breitt svið jaðartónlistar og var norðlenskt listafólk í forgrunni. Mannfólkið breytist í slím hefur farið fram árlega síðan 2018 og það á nýjum stað á hverju ári. Eitt af helstu einkennum hátíðarinnar er þannig að vera haldin utan hefðbundinna viðburðarýma en listasamlagið MBS sem að hátíðinni stendur hefur öðlast einstaka færni í að umturna hráum iðnaðarrýmum í heillandi samkomustaði á svipstundu. Til viðbótar við tónlistaratriði mátti sjá mynd- og myndbandslist auk atriða sem dansa mitt á milli tónlistar- og gjörningaformsins.
Mannfólkið breytist í slím hefur vakið athygli fyrir nýstárlega nálgun á viðburðahald og er sér á báti í menningarlandslaginu hérlendis. Á næsta ári verður hátíðin haldin í tíunda sinn.
Fylgjast má með listasamlaginu MBS á samfélagsmiðlum:
https://www.instagram.com/mbsskifur/
https://www.facebook.com/mbsskifur/










Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










