Nemendur Giljaskóla styðja við abc hjálparstarf á erfiðum tímumMynd: avh.is

Nemendur Giljaskóla styðja við abc hjálparstarf á erfiðum tímum

Nemendur í Giljaskóla vilja leggja sitt að mörkum í baráttunni við heimsfaraldurinn og ætla að styðja við söfnun ABC við kaup á matarpökkum handa fjölskyldum barna sem eru verst stödd. Sá hópur sem verður hvað verst úti eru þeir sem búa við viðvarandi skort, þar á meðal eru fjölskyldur barna sem eru í skólum á vegum ABC barnahjálpar í Afríku og Asíu, en skólum hefur víðast hvar verið lokað.

Nemendur Giljaskóla hafa verið að styrkja tvö börn á vegum ABC í mörg ár en eftir hverja söfnun hefur verið örlítill afgangur sem safnast hefur upp á reikning. Þá hafði það lengi verið hugmynd að styðja betur við ABC og því var ákveðið að leggja ABC lið með 50.000 króna framlagi til kaupa á matarpökkum.

Heimsfaraldurinn sem nú geisar snertir allt mannkyn. Hvar sem borið er niður eru áhrifin víðtæk og misjafnt hvaða burði þjóðir hafa til að bregðast við ástandinu. ABC hefur kallað eftir aðstoð þeirra sem eru aflögufærir að hjálpa þessum fjölskyldum sem eiga um sárt að binda á tímum covid. Hægt er að styrkja og lesa nánar um ástandið með því að ýta hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó