Ný könnun MMR: Framsóknarflokkurinn bætir við sig í NA-kjördæmi

Ný könnun MMR: Framsóknarflokkurinn bætir við sig í NA-kjördæmi

Sam­kvæmt nýrri könn­un MMR á af­stöðu fólks til fram­boða í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um munu frambjóðendur úr sjö flokkum í Norðausturkjördæmi komast á þing í haust. Viðreisn og Flokkur fólksins ná ekki inn manni.

Sjá einnig: Sjö flokkar í NA-kjördæmi ná manni inn samkvæmt nýrri könn­un MMR

Könn­un­in, sem MMR gerði í sam­starfi við Morg­un­blaðið og mbl.is, var gerð dag­ana 31. ág­úst til 3. sept­em­ber og var leitað álits 957 fólks, en 818 tóku af­stöðu til fram­boðanna, tæp 86%.

Samkvæmt síðustu skoðunakönnun MMR náðu einnig sjö flokkar manni inn í Norðausturkjördæmi. Helstu munurinn milli kannana er að í þetta skiptið ná Vinstri grænir inn manni en Flokkur fólksins missir sitt sæti. Þá missir Sjálfstæðisflokkurinn einnig mann en Framsóknarflokkurinn bætir við sig.

Þau sem komast á þing úr Norðausturkjördæmi samkvæmt niðurstöðum MMR eru:

  • Ingibjörg Ólöf Isaksen, Framsóknarflokknum
  • Logi Einarsson, Samfylkingunni
  • Njáll Trausti Friðbertsson, Sjálfstæðisflokknum
  • Línek Anna Sævarsdóttir, Framsóknarflokknum
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Vinstri grænum
  • Haraldur Ingi Haraldsson, Sósíalistaflokknum
  • Þórarinn Ingi Pétursson, Framsóknarflokknum
  • Hilda Jana Gísladóttir, Samfylkingunni
  • Einar Brynjólfsson, Pírötum

Þá nær Sigmundur Davíð Gunnlaugsson úr Miðflokknum jöfnunarsæti.

Þing­menn kjör­dæma sam­kvæmt skoðana­könn­un MMR. Mynd/​mbl.is

Kaffið.is fylgist með Alþingiskosningunum í haust með áherslu á Norðausturkjördæmi. Finna má fleiri greinar og annað gagnlegt efni tengt kosningunum með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI