Nýr kebab staður opnar á Akureyri – Taste lokar

Nýr kebab staður opnar á Akureyri – Taste lokar

Kjúklingastaðurinn Taste sem var til húsa að Skipagötu í miðbæ Akureyrar hefur verið lokað og mun nýr staður með nýjum eiganda opna í næstu viku í sama húsnæði.

Nýi staðurinn, sem heitir Kurdo Kebab, mun eins og nafnið gefur til kynna selja kebab og annan arabískan mat eins og shawrama, falafel og þá munu pítsur einnig verða á matseðlinum.

Rahim Rostami er maðurinn á bak við staðinn en hann er íranskur Kúrdi og hefur búið hér á landi í um tvö ár.

UMMÆLI