Nýtt bókaforlag í mótun: Ýtar hleypir af stokkunum Karolina Fund söfnun

Karolina Fund söfnun er hafin til að fjármagna prentun á fyrstu bókunum og koma Ýtar bókaforlagi á laggirnar.
Áhersla Ýtars er tvíþætt: útgáfa á vönduðu lesefni og skáldsögum fyrir fólk af erlendum uppruna á öllum aldri og námsstigum, ásamt grípandi skáldskap fyrir almennan bókamarkað.
Stofnandi forlagsins er Kristín Guðmundsdóttir en síðustu sjö ár hafa bækur hennar fyrir fólk sem lærir íslensku sem annað mál hlotið frábærar viðtökur á öllum skólastigum, hjá fyrirtækjum, bókasöfnum og einstaklingum heima og erlendis, og víðar.
Fyrstu tveir titlarnir í forskotsölu:
1. Hvað leynist í kistlinum: Léttlestrarbók á 3. stigi íslenskunáms – áttunda bók Kristínar í þessum flokki.
2. Frá norðri til nýrra heima: Ævintýraleg skáldsaga fyrir almennan markað um ferðalag um fimm heimsálfur.
Slóð á Karolina Fund söfnunina:
Tengdar greinar
Uppfært: 20. október 2026










