MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Nýtt frumsamið verk sýnt í Freyvangsleikhúsinu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
882518000_1473654581410291_3143546317551931579_n
kaffid.is

Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit mun frumsýna nýtt frumsamið verk 20. nóvember næstkomandi. Verkið heitir Marísól og leitin að gleðinni og er eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur með frumsamdri tónlist eftir Eirík Bóasson.

Jóhanna leikstýrir einnig verkinu og er þetta í fimmta skiptið sem hún leikstýrir barnaverki fyrir jólin hjá Freyvangsleikhúsinu, og í fjórða skipti sem hún og Eiríkur Bóasson taka höndum saman í tónlist og leik.

Eiríkur lést einungis viku eftir að var búið að kasta í hlutverk og er þetta því síðasta tónlistin hans. Henni verður stýrt að alúð af Hermanni Arasyni ásamt 3 öðrum í hljómsveitinni.

Verkið er hugljúf jólasaga um hana Marísól sem er 10 ára stelpa sem er mjög leið yfir komandi jólum, því pabbi hennar sem er sjómaður þarf að vinna yfir jólin. Þegar hún er sofnuð á þorláksmessukvöld þá vaknar uppáhalds bangsinn hennar, hann Viktor, til lífsins og fer með hana í ferðalag til að leita að gleðinni.

Þau hitta allskonar fólk á leið sinni, sem hafa öll mismunandi sýn á hvar gleðina er að finna en þegar á heildina er litið þá leynist gleðin í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir aðra og kemur líklega ávallt frá hjartanu.

Miðasala fer fram hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026