Nýtt norðlenskt barnaefni á leið á sjónvarpsskjáinnMynd: N4, Rakel Hinriksdóttir

Nýtt norðlenskt barnaefni á leið á sjónvarpsskjáinn

N4 sjónvarp er að hefja sýningar á leiknu barnaefni í samstarfi við Þjóðkirkjuna. Þetta er fyrsta leikna barnaefnið fyrir sjónvarp sem framleitt er af fagfólki búsettu á landsbyggðunum. Um er að ræða 12 þátta seríu sem fengið hefur nafnið Himinlifandi og er fyrsti þátturinn frumsýndur á sunnudaginn 2. október. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá N4.

 „Það er spilað á allar tilfinningar í þáttunum, bæði gleði og grátur. Umfjöllunarefnið er byggt á gildum kristinnar trúar og þessum mannlegu spurningar sem við erum öll að velta fyrir okkur, eins og t.d. hvort við eigum alltaf að segja satt, hvað okkur finnst, hvernig við getum tekist á við óöryggi o.fl,” segir Stefán Friðrik Friðriksson, framleiðslu- og markaðsstjóri  á N4.

Presthjón aðal leikararnir

Presthjón leika aðal hlutverkin

Það eru hjónin Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, presthjón á Möðruvöllum, sem fara með aðalhlutverkin í þáttunum en þau sjá einnig um handritsgerðina. Þá skapaði leikmyndahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir hina ævintýralegu leikmynd sem prýðir þættina en þættirnir voru teknir upp í Hlöðinni við Litla Garð á Akureyri.

Stórar spurningar en stutt í sprell

Aðalpersónur Himinlifandi eru þau Edda og Abbi sem lifa skrautlegu lífi í koti sínu. Með aðstoð Ráðavélarinnar takast þau á við stóru spurningunum í lífinu en alltaf er þó stutt í fíflagang og sprell. 

 „Það er ekki framleitt mikið af leiknu íslensku barnaefni hér á landi svo þetta eru töluverð tíðindi. Þetta er eitt af stærstu verkefnunum sem við á N4 höfum tekið að okkur og erum við mjög ánægð með samstarfið við Þjóðkirkjuna og vonum að áhorfendur verði himinlifandi með útkomuna.”

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó