Ólafur Pálsson ráðinn til Sjúkrahússins á Akureyri

Ólafur Pálsson ráðinn til Sjúkrahússins á Akureyri

Ólafur Pálsson, gigtarlæknir, hefur verið ráðinn til Sjúkrahússins á Akureyri, SAk. Ólafur mun koma að jafnaði einn dag í mánuði og sinnir göngudeild einstaklinga með gigtarsjúkdóma. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sjúkrahússins.

„Eins og staðan er nú mun hann eingöngu sinna þeim sem hafa verið í eftirfylgd hjá gigtarlækni og tekur ekki við nýjum tilvísunum að svo stöddu. Við bjóðum Ólaf hjartanlega velkominn til starfa á SAk,“ segir í tilkynningu SAk.

COMMENTS