Örlítið færri lið en í fyrra en álíka margir þátttakendur

Örlítið færri lið en í fyrra en álíka margir þátttakendur

Um liðna helgi fór fram 36. Pollamótið, sem undanfarin ár hefur borið nafnið Pollamót Þórs og Samskipa. Mótið í ár var með þeim stærstu, örlítið færri lið en í fyrra, en álíka margir þátttakendur. Í fyrra var sett met þegar 67 lið mættu til leiks, en í ár tóku 65 lið þátt með um 850 leikmenn innanborðs. Þetta kemur fram á vef Pollamótsins.

Sjá einnig: „Stækkaði“ umhverfisvænu flugeldasýninguna

„Að framkvæmd mótsins, skemmtidagskrárinnar, umgjarðarinnar og öllu sem tengist mótinu kom fjöldi sjálfboðaliða ásamt starfsfólki Þórs. Án þessa öfluga og fjölmenna hóps væri ómögulegt að halda mótið og er öllum sem lögðu hönd á plóg færðar hér bestu þakkir fyrir. Þátttakendurnir eru auðvitað lífsnauðsynlegir fyrir fótboltamót því án ykkar væri tilgangslaust að standa í því að skipuleggja mót. Kærar þakkir til ykkar allra,“ skrifar Haraldur Ingólfsson á vef Pollamótsins.

Næsta Pollamót Þórs og Samskipa verður haldið með sömu formerkjum dagana 5. og 6. júlí 2024.

Myndir frá mótinu, þar á meðal af öllum verðlaunahöfum, má finna í myndaalbúmi Ármanns Hinriks Kolbeinssonar – sjá hér: Myndaalbúm Pollamóts 2023: https://photos.app.goo.gl/FBFhSnSD8Z84vvgNA

Keppt var í sjö deildum eins og oftast áður hin síðari ár, fjórum karladeildum og þremur kvennadeildum. Hér að neðan má sjá verðlaunahafa mótsins í ár.

Verðlaunahafar

Ljónynjudeild – konur 35+
AFK
Drottningar

Dömudeild – konur 28+
FC Lola
Rauðvínsbeljurnar
Dætur Þorpsins

Skvísudeild – konur 20+
225
Víkin FC
FC Guns

Öðlingadeild – karlar 50+
1. UMF. Óþokki
2. Þór C
3. Grótta

Lávarðadeild – karlar 42+
UMF. Óþokki
Ginola
Magni

Jarladeild – karlar 35+
FC Samba Legends
KFF Masters
KF Móði

Polladeild – karlar 28+
FC Baz
Vinir Linta
Afkvæmi Palla Gísla

Liðin Fireball (konur) og Ginola (karlar) voru valin Gleðigjafar mótsins. Katrín Vilhjálmsdóttir var valin Þorpari mótsins í kvennaflokki, en bræðurnir Ágúst og Hrafnkell Ágústssynir skiptu með sér þeim verðlaunum í karlaflokki.


UMMÆLI

Sambíó