Örlög, gleði og yndishrúga

Örlög, gleði og yndishrúga er titill tónleika Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur, sem þær halda í Akureyrarkirkju sunnudaginn 8. nóvember kl. 17. Á tónleikunum munu þær leika nýja tónlist eftir sig sjálfar.
Tónleikarnir verða þeir áttundu og síðustu í tónleikaferð tvíeykisins um Þingeyjarsýslur og Eyjafjörð. Fyrstu tónleikana héldu þær á Kópaskeri 23. ágúst, og svo á Þórshöfn, Raufarhöfn, Grenivík, Dalvík, Ólafsfirði og í Reykjahlíð. Á efnisskrá eru splunkunýjar tónsmíðar eftir þær sjálfar. Sigrún semur Örlög, stutt lög fyrir píanó eða orgel. Einnig samdi hún lag við ljóðið Gleði eftir Bjarteyju Jónsdóttur. Bjartey orti ljóðið barn að aldri og er það barn- og barnakórsvænt lag. Enda ætlar gamli kórinn hennar Bjarteyjar, Skólakór Kársness að syngja lagið. Steinunn leggur í púkkið söngljóð og ýmiss konar hljóðfæratónlist samda upp úr ljóðabók sinni Yndishrúgu. Úr verður örlaga-, yndis- og gleðirík heild, gerð úr tónlist fyrir selló, orgel, píanó og söng.
Sigrún og Steinunn fengu styrk úr launasjóði listamanna til að semja efnisskrána og spila hana á átta stöðum á Norðurlandi. Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir einnig tónleikana á sunnudaginn og því er aðgangur ókeypis.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










