Pastel sumarveisla í Sigurhæðum

Tíu ára afmæli Pastel ritraðar verður fagnað með Sumarveislu Pastel laugardaginn 1. ágúst klukkan 13-15 og fara leikar fram í Menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri.
Fram koma ólíkir listamenn og rithöfundar úr röðum Pastel eða þau Árni Friðriksson, Ester Hilmarsdóttir, Gerður Kristný, Hildur Eir Bolladóttir, Hlynur Hallsson, Jónína Björg Helgadóttir, Kári Tulinius, Kristín Þóra og Samúel Lúkas.
Það er enginn aðgangseyrir en viðburðurinn er samfjármagnaður af Uppbyggingasjóði SSNE, Menningarsjóði Akureyrarbæjar, Akureyrarbæ, Ráðuneyti menningar, háskóla og nýsköpunar, Útgáfufélaginu, Flóru menningarhúsi og síðast en ekki síst framlagi Pastella sjálfra.
Pastel ritin eru í millitíðinni orðin 42 talsins og það er hægt að sjá öll verkin á www.pastel.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










