PCR og hraðgreiningarpróf hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

PCR og hraðgreiningarpróf hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Frá og með 14.september verða hraðgreiningapróf í boði á meginstarfstöðvum á Norðurlandi og má sjá upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma í töflu hér fyrir neðan.

Fyrirkomulag PCR prófa og hraðprófa hjá HSN:

  1. Einkenna og sóttkvíar PCR próf eru á öllum meginstarfstöðvum.
  2. Ferðamanna PCR próf þegar fólk er að fara erlendis eru einungis í boði á Akureyri og eru pöntuð í gegnum travel.covid.is
  3. Ferðamanna hraðgreiningapróf, fyrir fólk sem er að fara erlendis eða koma að utan eru á öllum meginstarfstöðvum.
  4. Hraðgreiningapróf nemenda og kennara í skólum og vegna viðburðahalds eru á öllum meginstarfstöðvum. Hraðgreiningapróf vegna smitgátar í skólum fara í gegnum smitrakningarteymi í samvinnu við skólana. Skráning í smitgát er í gegnum smitgat.covid.is. Hraðgreiningapróf vegna viðburðahalds eru pöntuð í gegnum hradprof.covid.is (vefur er í vinnslu). Á sumum starfstöðvum þarf einnig að hringja og panta tíma fyrir sýnatöku. Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan. 

Á Akureyri verða hraðpróf tekin alla virka daga milli kl. 11.00 og 14.00 en PCR próf tekin kl. 09:00-11:00 alla virka daga og um helgar. Hér að neðan má sjá nánari upplýsingar um hvar og hvenær hægt er að fara í próf.

Sambíó

UMMÆLI