Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Reitir opna sýningu og halda málstofu

Reitir

Reitir

Í tilefni bókarútgáfu menningarsmiðjunnar Reita, Tools for Collaboration verður opnuð sýning og málstofa haldin í Listasafninu, Ketilhúsi, laugardaginn 17. desember kl. 15. Viðburðurinn er öllum opinn, án endurgjalds.

Smiðjan Reitir hefur nú verið haldin síðustu fimm sumur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og til að fagna þeim áfanga hefur hópurinn unnið að ítarlegri greiningu á verkefninu. Eftir marga mánaða vinnu er útkoman 448 blaðsíðna bók sem tekur saman öll helstu atriði smiðjunnar og miðlar þeirri þekkingu sem þar hefur orðið til á síðustu árum. Bókin er hagnýtur leiðarvísir að menningartengdu frumkvöðlastarfi og innblástur fyrir alla þá sem eru áhugasamir um lausnamiðað og skapandi starf.

Dagskráin er eftirfarandi:

15.00 Opnun sýningar og bókaútgáfu
15.15 Ávarp ritstjóra
16.00 Málstofa
17.10 Boðið uppá kartöflusúpu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur

Málstofan verður miðuð að einstaklingsframtaki og frumkvöðlastarfi í menningu og þeim verkfærum sem hægt er að beita á þeim grundvelli. Hluti viðburðarins fer fram á ensku.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó