Rúmlega 300 verkefni skráð hjá lögreglu um helginaMynd: Kaffið.is/Jónatan.

Rúmlega 300 verkefni skráð hjá lögreglu um helgina

Mikið margmenni var í bænum um helgina enda mikið um að vera í bænum ss. útskriftir, júbilantahátíð og Bíladagar. Forsvarsmenn Bíladaga segja að aldrei hafi fleiri aðgöngumiðar selst á hátíðina en nú í ár.

Lögreglan á Akureyri greindi frá því í dag að alls voru 305 verkefni skráð í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra um helgina. Þar af eru kærur vegna of hraðs aksturs 97 talsins. Fjórar líkamsárásir eru skráðar og 6 eru kærðir vegna aksturs undir áhrifum áfengis. Einn er kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fyrir vörslur fíkniefna. Þá sinnti lögreglan nokkrum umferðaróhöppum en engin slys urðu á fólki. Ekkert kynferðisbrot hefur verið kært til lögreglu.

Einn og einn svartur sauður innan fjöldans

Í tilkynningu lögreglu segir að nokkrir hafi kvartað um helgina vegna ónæðis frá umferð en annars hafi þetta gengið nokkuð vel fyrir sig, enda séu flestir viðburðir hátíðarinnar haldnir á starfssvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
Því miður hefur það loðað við Bíladaga að þeim hefur fylgt ónæði fyrir bæjarbúa, vegna hávaða og mengunar sem verður þegar spólað er á götum bæjarins. Við viljum meina að þetta hafi þó lagast töluvert. Þó er alltaf einn og einn svartur sauður innan um sem getur ekki stillt sig um að haga sér eins og bjáni. Við gerum okkar besta til að stemma stigu við þessu, svo sem eins og að vera með ómerkta lögreglubíla í umferð og fylgjast sérstaklega með ákveðnum svæðum. Það verður þó aldrei þannig að við séum allsstaðar alltaf. Eftir helgina eru bókaðar 5 tilkynningar, þar sem bæjarbúar kvarta undan ónæði af þessu tagi,“ segir í tilkynningunni.

UMMÆLI

Sambíó