SA vann þrjú gullverðlaun á vormóti ÍSS – Aldís Kara sló ÍslandsmetiðÁ myndinni er Darja Zajcenko þjálfari ásamt Aldísi Köru, Mörtu Maríu, Júlíu Rós og Freydís Jónu. Mynd: Sasport.is.

SA vann þrjú gullverðlaun á vormóti ÍSS – Aldís Kara sló Íslandsmetið

Vormót ÍSS fór fram um helgina í Skautahöllinni í Laugardal, þar sem Skautafélag Akureyrar vann til 9 verðlauna. SA sigraði í þremur flokkum og náðu einnig í fjögur silfurverðlaun og þrjú bronsverðlaun.
Stærsta afrek helgarinnar var þó nýtt Íslandsmet sem Aldís Kara Bersdóttir setti þegar hún fékk 112.81 stig en eldra metið átti hún sjálf frá því í febrúar þegar hún náði 108.45 stigum á Reykjavíkurleikunum.

Hörð keppni milli Aldísar Köru og Mörtu Maríu í Junior

Í keppnisflokkinum Junior Ladies var það Aldís Kara Bergsdóttir sem sigraði flokkinn og setti í leiðinni nýtt stigamet. Hún og Marta María Jóhannsdóttir, sem lenti í öðru sæti, áttu harða keppni bæði á laugardag og sunnudag þegar þær kepptu með stutta prógrammið og síðan frjálsa prógrammið. Aldís Kara og Marta María hafa báðar staðið sig frábærlega í vetur og verið ótrúlega spennandi að fylgjast með hvor þeirra hefur sigur úr bítum. Aldís byrjaði strax með látum í stutta prógramminu þegar hún lenti meðal annars þreföldu Salcowi í samsetningu en heildarstig hennar fyrir stutta prógrammið voru 41.37 stig. Marta María hélt fast á eftir með 40.91 stig. Á sunnudeginum byrjaði Marta María með fullgildum tvöföldum Axel í samsetningu og lauk prógraminu með 107.08 stig. Aldís Kara lenti einnig tvöföldum Axel í þriggja stökka samsetningu og fékk heildarstig upp á 112.81 stig og var því sigurvegari flokksins.

Meira gull, silfur og brons í öllum öðrum flokkum sem SA átti keppendur í

Í Advanced Novice var Júlía Rós Viðarsdóttir frá SA í fyrsta sæti með prógrami sem skilaði henni 74.05 stigum. Í öðru sæti var Freydís Jóna Jing Bergsveindóttir frá SA með 63.24 stig.

Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir úr SA vann til gullverðlauna í Intermediate Ladies og Hugrún Anna Unnarsdóttir frá SA varð í þriðja sæti. Í Intermediate Novice náði Telma Mary Arinbjarnardóttir öðru sæti.

Í Basic Novice varð Magdalena Sulova frá SA varð í öðru sæti og Sædís Heba Guðmundsóttir úr SA í þriðja sæti.

Sambíó

UMMÆLI