![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/05/1344510842-bjorgulfur-11r-400x110.jpg)
Mynd: Samherji.is
Í dag var undirritaður samningur um lóð fyrir nýtt fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík. Áætluð verklok eru í lok árs 2018. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.
Áætlaður kostnaður er þrír og hálfur milljarður króna en Bjarni Th Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, sagði í samtali við fréttastofu RÚV að uppbygging sem þessi hafi mikla þýðingu fyrir Dalvíkurbyggð.
Reiknað er með að framkvæmdir hefjist á þessu ári.
UMMÆLI