Sérstakt eftirlit með ökumönnum í símanum undir stýri


Lögreglan á Norðurlandi eystra er á leiðinni í sérstakt átak frá og með deginum í dag, 12. febrúar, til 18. febrúar. Þá munu lögreglumenn í umdæminu vera með sérstakt eftirlit er varðar ökumenn sem eru í símanum við akstur.

,,Gefum símanum frí – þegar við erum að aka.“
Í tilkyninningu frá lögreglunni segir að margsannað sé að símanotkun við akstur dragi verulega úr getu ökumanna til að sinna sínu starfi af fullu öryggi, þ.e. að aka. ,,Við höfum því miður of mörg dæmi þar sem slys og óhöpp hafa átt sér stað þar sem ökumenn hafa verið í símanum og afleiðingar þeirra ekki verið afturkræfar. Takið ykkur því frí frá símanotkun þegar þið eruð að aka, þið eigið bara eitt líf,“ segir í tilkynningunni.

 

UMMÆLI