Sex verkefni á Norðurlandi eystra fengu styrk úr Hvatasjóði

Sex verkefni íþróttafélaga á Norðurlandi eystra fengu úthlutað rúmum 2,2 milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku. Þrjú félög fengu 500 þúsund krónur hvert og voru það hæstu styrkirnir. Hin verkefnin þrjú hlutu 250 þúsund krónur hvert.
Þau sem fengu hálfa milljón króna eru KA og Þór fyrir verkefnið Allir með æfingar á Akureyri, sem snýr að því að ná betur til iðkenda með fötlun. Tennis- og badmintonfélag Siglufjarðar hlaut styrk fyrir verkefni sem varðar börn og ungmenni með sérþarfir í badmintoni og Ungmennafélag Langnesinga hlaut jafn háa fjárhæð fyrir verkefnið Íþróttir fyrir alla – óháð tekjum heimilanna.
Hestamannafélagið Þjálfi á Húsavík hlaut 250 þúsund krónur fyrir verkefnið Saman í hestamennsku og Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs hlaut tvo 250 þúsund króna styrki fyrir verkefni sem snúa að stuðningi við tekjulága og fótbolta fyrir öll.
57 verkefni fengu 26 milljónir
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði samtals 26 milljónum króna til 57 verkefna um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Sjóðurinn er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Hann tók til starfa í lok árs 2024 og alla jafna hafa verið veittir styrkir úr honum þrisvar sinnum á ári. Þetta er önnur úthlutun ársins úr sjóðnum. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ og sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.
Meiri upplýsingar um Hvatasjóðinn má finna á vefsvæði Svæðisstöðva íþróttahéraðanna: https://www.siu.is/hvatasjodur
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026





