Sigurður Höskuldsson ráðinn þjálfari Þórs

Sigurður Höskuldsson ráðinn þjálfari Þórs

Knattspyrnudeild Þórs hefur gengið frá þriggja ára samningi við Sigurð Heiðar Höskuldsson um þjálfun meistaraflokks karla.

„Siggi var efstur á lista stjórnar frá upphafi og sá eini sem við fórum í viðræður við. Erum við því virkilega ánægðir með ráðninguna, hlökkum til samstarfsins og bjóðum hann velkominn í Þorpið,“ segir Sveinn Elías, formaður knattspyrnudeildar Þórs í samtali við thorsport.is.

Sigurður Heiðar er 38 ára gamall og starfaði síðast hjá Val sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks en var þar áður aðalþjálfari Leiknis R. þar sem hann náði eftirtektarverðum árangri.

Siggi Höskulds, eins og hann er oftast kallaður, er íþróttafræðingur að mennt auk þess að vera að ljúka við UEFA PRO sem er æðsta þjálfaragráða hér á landi.

Tilkynning frá Val
Sigurður Höskuldsson aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla Vals hefur óskað eftir að láta af störfum. Sigurður gekk til liðs við Val frá Leikni Reykjavík fyrir s.l keppnistímabil og hefur sýnt og sannað að þar er á ferðinni frábær þjálfari, góður einstaklingur og félagi. Sigurður tekur við sem aðalþjálfari Þórs Akureyri og óskum við honum velfarnaðar í leik og starfi.

UMMÆLI