Sjáðu mörkin úr leik Þórs og HK

Loftur Páll skoraði glæsilegt mark. Mynd:Thorsport.is

Eins og við greindum frá í gær lyftu Þórsarar sér upp í 6.sæti Inkasso deildarinnar í fótbolta þegar liðið vann öruggan 3-0 sigur á HK á Þórsvelli.

Varnarmennirnir Aron Kristófer Lárusson og Loftur Páll Eiríksson sáu um að koma Þórsurum tveim mörkum yfir áður en markahrókurinn Jóhann Helgi Hannesson gulltryggði sigurinn tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Heimasíða Þórs var að sjálfsögðu á staðnum og tók saman það helsta úr leiknum.

UMMÆLI

Sambíó