MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Skollamjólk flæðir áfram í Slímstöðinni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Fiskabur_1.16.1
Biggi Maus og MeMMM spiluðu í október· kaffid.is

Tónleikaröðin Skollamjólk hóf göngu sína byrjun september með einstaklega vel heppnuðum tónleikum hljómsveitarinnar Strákurinn fákurinn sem Biggi Maus & MeMMM fylgdu eftir með glæsibrag í október. Skollamjólk er nýjasta útspil listasamlagsins MBS sem einnig heldur úti sjálfstæðri plötuútgáfu á Akureyri auk þess að hafa staðið fyrir menningarhátíðinni Mannfólkið breytist í slím frá árinu 2018.

Eitt helsta einkenni Skollamjólkur eru lifandi tónlistarmyndbönd sem gefin verða út á YouTube rás MBS.

Mannveira er ein þeirra hljómsveita í nýju íslensku svartmálmsbylgjunni sem hafa verið að vekja verulegan áhuga bæði innanlands og erlendis. Fyrsta plata Mannveiru, Vítahringur kom út hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Dark Descent Records árið 2021 og nú í október kom önnur plata þeirra Vesöld út hjá sömu útgáfu. Báðar plötur hafa hlotið eindæma góða dóma og nú kemur Mannveira glóðvolg af evróputúr til Akureyrar svo vænta má gæða úr efstu hillu. Þetta verður einstakt tækifæri til þess að sjá svartmálm af bestu sort á Akureyri.

Skollamjólk er haldin mánaðarlega í Slímstöðinni, höfuðstöðvum MBS samsteypunnar. Ein hljómsveit eða atriði kemur fram í hvert sinn þar sem markmið tónleikaraðarinnar er að auka bæði fjölda og fjölbreytni tónleika á Akureyri, ásamt ríkri áherslu á að fanga tónleikana á hljóð og mynd, vinna úr þeim með sem faglegustum hætti og birta á netinu.

Fyrir liggur dagskrá næstu mánaða en næst kemur Áki Frostason fram 12. desember og Drinni & the Dangerous Thoughts byrja svo nýja árið af krafti á vörutalningadeginum 2. janúar 2027.

Upplýsingar um MBS og Skollamjólk má finna á miðlum samsteypunnar:

mbsskifur.is

instagram.com/mbsskifur

facebook.com/mbsskifur

Ekkert kostar inn á viðburði Skollamjólkur en tekið er við frjálsum framlögum gesta.

Upptökur frá fyrri Skollamjólkum má finna hér:

https://www.youtube.com/playlist?list=PLKiqIiS7TKxM

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026