Prenthaus

Slysavarnardeild Akureyrar gaf Kristnesspítala gjafir

Kristnesspítali. Mynd: sak.is

Í tilkynningu frá Sak, Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir að Slysavarnardeild Akureyrar hafi veitt Kristnesspítala góðar gjafir á dögunum. Þá gáfu þeir spítalanum mannbrodda og endurskinsvesti sem getur nýst gönguhópum mjög vel í hálkunni og myrkrinu. Tekið er fram í tilkynningunni að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem að gönguhóparnir njóti góðs af starfi Slysavarnardeildarinnar en á síðasta árið hlaut gönguhópurinn göngustafi frá deildinni.

,,Við þökkum þeim kærlega fyrir góðar gjafir en þær munu nýtast okkur vel í myrkrinu  og hálkunni. Notkun mannbrodda á Kristnesi verður  oft til þess að skjólstæðingar okkar halda áfram að nota þessi einföldu hjálpartæki eftir að heim er komið. Við vonum að svo verði líka með endurskinsvestin eða endurskin af einhverju tagi“ segir í tilkynningu sjúkrahússins.

UMMÆLI

Sambíó