Prenthaus

Smarties súkkulaðibitakökur í krukku – Frábær jólagjöf til þeirra sem eiga allt

Gjöf sem gleður

Gjöf sem gleður

Nú fer senn að líða að jólum og eflaust margir sem enn eiga eftir að ákveða hvað þeir eiga að gefa í jólagjöf. Okkur á Kaffinu langaði að sýna ykkur eina ódýra og skemmtilega gjöf sem þú getur gefið þeim sem eiga allt. Smarties súkkulaðibitakökur í krukku er frábær gjöf þar sem öllum þurrefnum í köku er komið fyrir í krukku ásamt uppskrift. Sá sem fær gjöfina þarf því aðeins að blanda fersku innihaldsefnunum við og baka.

Smarties súkkulaðibitakökur  í krukku

Innihald í krukkuna:
250 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
4 tsk vanillusykur
150 gr púðursykur
150 gr sykur
150-200 gr Smaries

Öllu þjappað vel saman

Öllu þjappað vel saman

Gerð krukkunnar:
1. Hrærið saman hveiti, salti, lyftidufti og vanillusykur og setjið neðst í krukkuna. Það er nauðsynlegt að þjappa vel í áður en næsta hráefni er sett ofan í.
2. Næst er púðursykurinn settur í krukkuna og þjappað.
3. Þar á eftir kemur sykurinn í krukkuna og þjappað vel.
4. Síðast er Smarties-ið sett í krukkuna. (Ef að krukkan sem er notuð er ekki nægilega stór þá er gott að setja restina af samties-inu inn í selló og binda utan um krukkuna.

Miðinn sem fylgir með:
Á krukkuna er fallegt að hengja miða með upplýsingum um kökuna. Framan á miðann er skrifað Samrites Súkkulaðibitakökur. Aftan á miðann er gott að skrifa leiðbeiningar um gerð kökunnar og hvað innihaldsefnum þarf að bæta við.

Krukkan að verða klár

Krukkan að verða klár

Aðferðin sem látin er fylgja með:
1. Þeytið 2 egg og 170 gr af smjöri vel saman.
2. Bætið innihaldinu af krukkunni saman við og hrærið.
3. Búið til litlar kúlur úr deginu og setjið á bökunarplötu með bökunarpappír.
4. Bakið við 180 gráður í 12 mín.

Sambíó

UMMÆLI