KIA

Staðfest smit orðin 34 á Norðurlandi eystra

Staðfest smit orðin 34 á Norðurlandi eystra

34 smit vegna Covid-19 hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra. Það fjölgar því einungis um eitt smit frá tölum gærdagsins. Þetta kemur fram á covid.is þar sem nýjustu tölur vegna smita voru birtar klukkan 13.

Þá birti lögreglan á Norðurlandi eystra tölur yfir fjölda fólks í sóttkví og einangrun eftir póstnúmerum sem sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Einstaklingum í sóttkví fækkar enn og nú eru 375 einstaklingar í sóttkví á svæðinu en í gær voru þeir 399 og á mánudaginn 402.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

UMMÆLI