![Afhending jólagjafarinnar.](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/12/15590469_1351176844914065_3289332954460159988_n-400x300.jpg)
Afhending jólagjafarinnar.
Starfsfólk á veitingastaðnum Bautanum á Akureyri veitti Hetjunum, félagi langveikra barna á Norðurlandi, 200.000 krónur í jólagjöf. Peningnum söfnuðu starfsmenn með því að afþakka jólagjöf þetta árið og vildu frekar láta peninginn sem annars vegar færi í gjafirnar, renna til góðs málefnis.
Hetjurnar voru stofnaðar árið 1999 og eru aðildafélag í Umhyggju sem er regnhlífarsamtök fyrir foreldrafélög langveikra barna á Íslandi.
Á myndinni sést Freydís Ásmundsdóttir, starfsmaður Bautans, afhenda fulltrúum Hetjanna peninginn fyrir hönd starfsmanna Bautans.
UMMÆLI