Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir fólkvanginn Glerárdal

Mynd: akureyri.is.

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar og Akureyrarbæjar unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir fólkvanginn Glerárdal. Tillagan var lögð fram til kynningar á heimasíðu Akureyrarbæjar. Þar segir:

Glerárdalur var friðlýstur sumarið 2016 og er markmið friðlýsingarinnar að vernda Glerárdal og aðliggjandi fjallendi til útivistar almennings, náttúruskoðunar og fræðslu.
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Glerárdal er ætlað að vera stefnumótandi skjal, unnið í samvinnu við sveitarfélag og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun Glerárdals og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Með áætluninni er stefnt að því að standa vörð um og efla jákvæða ímynd svæðisins. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt aðgerðaáætlun sem er unnin af Akureyrarbæ.

Hér má sjá stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Glerárdal auk auglýsingar um friðlýsingu svæðisins sem gerð var árið 2016.

Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 23. apríl nk. Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.

UMMÆLI

Sambíó