MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Sturtuhausinn haldinn í Gryfjunni á ný

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
vma
kaffid.is

Í tilkynningu frá VMA kemur fram að Sturtuhausinn, hin árlega söngkeppni VMA, verður haldin í Gryfjunni í VMA fimmtudagskvöldið, 12. nóvember, klukkan 20. Undantekning var með síðasta Sturtuhaus sem var haldinn í Sjallanum í janúar síðastliðinn, áður hafði hann verið haldinn til fjölda ára á haustönn líkt og nú.

Að þessu sinni verða tíu keppendur í Sturtuhausnum.

Í hljómsveit kvöldsins verða: Benóní Meldal Kristjánsson (trommur), Arnar Franz Hauksson (gítar), Emil Andri Davíðsson (bassi) og Örn Heiðar Lárusson (hljómborð).

Dómarar kvöldsins verða Ágúst Brynjarsson, Anna Skagfjörð og Rúnar Eff.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026