Sundlaugagarður opnar í sumar

Sundlaug Akureyrar.

Þá hefur verið ákveðið að fara í framkvæmdir á nýjum sundlaugagarði við Sundlaug Akureyrar. Þetta hefur Akureyrarbær ákveðið en stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í júlí í sumar.

Þar stendur til að útbúa sólbaðsaðstöðu og leikvsvæði fyrir börn með grænu svæði. Á svæðinu verður gervigras fyrir leiki, ærslabelgir og fleiri leiktæki. Svæðið verður allt girt af sem kemur til með að bæta ásýnd svæðisins. Samkvæmt heimildum Vikudags kemur framkvæmdin til með að kosta í kringum 100 milljónir, stærstu hluti þeirrar upphæðar fer í girðinguna kringum svæðið.

Um þessar mundir er verið að klára vinnu við heita potta og fosslaug í sundlauginni sem áætlað er að klárist í mánuðinum. Áður hafa verið reistar þrjár rennibrautir, stigahús, lendingarlaug stækkuð, fjölnotaklefi tekinn í notkun, kaldur pottur settur upp og tæknirými endurbætt auk ýmissa viðhaldsverkefna sem kominn var tími á.

Sjá einnig:

Framkvæmdum við Sundlaug Akureyrar lýkur í mars

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó