Taka jákvætt í hugmyndir um fljótandi saunu á Akureyri

Taka jákvætt í hugmyndir um fljótandi saunu á Akureyri

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur tekið fyrir erindi Meinhard Egilsson Olsson fyrir hönd MeiSauna ApS óskar eftir því að fá úthlutuðu plássi við bryggju á Akureyri fyrir fljótandi saunu.

Skipulagsráð tók jákvætt í erindið og hefur falið skipulagsfulltrúa að skoða mögulegar staðsetningar í samráði við Hafnasamlagið og umhverfis- og mannvirkjasvið.

Í erindinu er svæðið við Menningarhúsið Hof nefnt sem tilvalinn staður og einnig Óseyri. Hugmyndin er að setja upp eina til tvær saunur við Pollinn á Akureyri og bjóða upp á bókanir á netinu.

Ítarlegri upplýsingar.

COMMENTS