Þór vann Njarðvík á meðan Þór/KA tapaði sínum fyrsta leik í sumarJóhann Helgi skoraði fyrir Þór í kvöld eftir félagsskipti frá Grindavík í gær

Þór vann Njarðvík á meðan Þór/KA tapaði sínum fyrsta leik í sumar

Magni og Hamrarnir töpuðu bæði sínum leikjum

Þórsarar fengu Njarðvíkinga í heimsókn í Þorpið í kvöld í blíðskaparveðri.

Fyrri hálfleikur var alls ekki upp á marga fiska, lítið um tækifæri.

Seinni hálfleikurinn var mun líflegri en strax á 51. mínútu skoraði Aron Kristófer með góðu skoti frá vinstri, en Aron kom inná í hálfleik fyrir Óskar Elías.

Jóhann Helgi bætti svo við öðru marki Þórsara á 65. mín í sinni fyrstu snertingu fyrir Þór í sumar, en hann kom aftur til liðsins í gær frá Grindavík, frábær byrjun hjá Jóhanni sem var aðeins búinn að vera inná í tvær mínútur.

Þriðja og síðasta mark leiksins skoraði Ármann Pétur eftir að skot hans hafði viðkomu í varnarmanni Njarðvíkinga. 3-0 sigur Þórsara staðreynd.

Næsti leikur liðsins er á fimmtudaginn eftir rúma viku þegar Þórsarar heimsækja Fram á Laugardalsvöll.

 

 

Fyrsti tapleikur sumarsins hjá Þór/KA

Þór/KA tapaði sínum fyrsta leik í Pepsi deild kvenna í sumar þegar liðið heimsótti KR á Alvogenvöllinn.

Leiknum lauk 2-1 fyrir KR-inga, mörk KR skoruðu þær Tijana Krstic og Mia Celestina Annete Gunter. Mark Þór/KA skoraði Sandra Stephany Mayor Gutierrez.

Næsti leikur Þór/KA er föstudaginn 17. ágúst þegar FH kemur í heimsókn í Þorpið.

 

Magni tapaði í Ólafsvík

Magni tapaði 4-1 fyrir Víking Ólafsvík í Inkasso deild karla.

Magni sitja því ennþá á botni deildarinnar með 9 stig eftir 14 umferðir.

Næsti leikur liðsins er á fimmtudaginn í næstu viku þegar Selfyssingar koma í heimsókn á Grenivík.

 

Hamrarnir töpuðu illa

Hamrarnir heimsóttu Fylki í árbæinn í Inkasso deild kvenna í kvöld, leiknum lauk með 7-0 sigri Fylkis.

Hamrarnir eftir leikinn í kvöld í 6. sæti deildarinnar með 12 stig.

Næsti leikur liðsins er 11. ágúst gegn Haukum í Hafnarfirði.

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó