Þórhallur Harðarson gefur kost á sér í 4. sæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Þórhallur Harðarson gefur kost á sér í 4. sæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, gefur kost á sér í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri til bæjarstjórnarkosninga, í röðun sem fram fer 7. febrúar næstkomandi.

Þórhallur er 53 ára, giftur og á þrjú uppkomin börn. Hann hefur sinnt í fjölbreyttum stjórnunarstöðum í heilbrigðisgeiranum í 21 ár, þar á meðal sem framkvæmdastjóri, mannauðsstjóri, forstjóri og rekstrarstjóri. Áður starfaði hann í 11 ár í hótel- og veitingageiranum sem matreiðslumaður, hótelstjóri og Food Service Manager hjá Bandaríkjaher. Var lengi vel með eigin rekstur t.d. einn eiganda og hótelstjóri á Fosshótel Húsavík, rak Gamla Bauk og átti og rak Hlöðufell sem var hans fyrsti rekstur.
Hann er með BS í viðskiptafræði, meistaragráðu í stjórnun og Verkefnastjórnun og sveinspróf í matreiðslu og útskrifaður úr Hótel og veitingaskóla.

Þórhallur hefur starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn í 22 ár og setið í fjölmörgum nefndum og ráðum á Akureyri og áður á Austurlandi. Þá hefur hann tekið mikinn þátt í íþrótta og félagslífi.

Helstu áherslur í framboði

  • Ábyrga fjármálastjórn og hóflegar álögur
  • Sjálfbært skipulag og uppbygging fyrir íbúa og atvinnulíf
  • Gæðastarf í leik og grunnskólum
  • Bætt aðstaða til íþrótta og menningar
  • Sterk velferðarþjónusta og gott aðgengi
  • Umhverfismál, orkuskipti og þróttmikil stafræn stjórnsýsla

„Ég vil leggja mitt af mörkum til að Akureyri sé áfram öruggt, öflugt og aðlaðandi bæjarfélag. Með reynslu minni, bæði úr stjórnsýslu og samfélagsmálum, tel ég mig geta lagt mikið af mörkum í 4. sæti listans,“ segir Þórhallur.

COMMENTS