Þórhallur Ottesen opnar póstkortasýningu á Amtsbókasafninu

Þórhallur Ottesen opnar póstkortasýningu á Amtsbókasafninu

Mánudaginn 3. júlí n.k. kl. 15:00 mun Þórhallur Ottesen safnari opna sýningu á póstkortum sem sýna myndir af Akureyri og nágrenni frá tímabilinu 1880-1950. Sýningin mun standa út júlí.

Þórhallur Ottesen er brottfluttur Akureyringur, fæddur árið 1959 og er mikill safnari. Hann á eitt stærsta póstkortasafn sem sýnir Akureyri og nágrenni, í einkaeigu sem vitað er um og hafa sum kortanna aldrei verið sýnd opinberlega fyrr. Þórhallur hefur safnað kortunum síðastliðin 40 ár og hafa þau verið fengin víða um heim, bæði frá einkaaðilum sem og á uppboðum.

Gestum Amtsbókasafnsins á Akureyri býðst nú tækifæri á að skoða kortin þegar póstkortasýning Þórhalls mun opna í safninu mánudaginn 3. júlí n.k. kl. 15:00. Léttar veitingar verða í boði og eru allir velkomnir!


UMMÆLI

Sambíó