Þórsvöllur verður VÍS-völlurinnFrá undirritun samningsins. Frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson, leikmaður Þórs, Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustu stjóri VÍS á Akureyri, Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Hulda Björg Hannesdóttir, leikmaður Þórs/KA. Mynd: Thorsport.is

Þórsvöllur verður VÍS-völlurinn

Undirritaður hefur verið samningur til þriggja ára milli VÍS og íþróttafélagsins Þórs um að nafni Þórsvallar verði breytt og muni verða notast við nafnið VÍS-völlurinn að minnsta kosti næstu þrjú árin. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórs.

Í tilefni af samningum þessa efnis býður VÍS á leik Þórs og Aftureldingar í Lengjudeildinni sunnudaginn 16. júlí. 

„Það liggur beinast við að Þórsvöllurinn verði VÍS-völlurinn, enda eigum við fallega rauða litinn sameiginlegan. Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og það er okkur ljúft og skylt að styrkja íþróttastarfið með þessum hætti. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustustjóri VÍS á Akureyri.

Sjá einnig: Ingvi Hrafn nýr þjónustustjóri hjá VÍS á Akureyri

„Við erum þakklát VÍS fyrir þetta rausnarlega framlag og samninginn til næstu þriggja ára. Þetta skiptir íþróttastarfið miklu máli. Við erum því virkilega spennt fyrir komandi tímum,“ segir Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs.


UMMÆLI

Sambíó