Prenthaus

Þyrla Landhelgisgæslunar send á vettvang vélsleðaslyss ofan við DalvíkÞyrla Landhelgisgæslunnar.

Þyrla Landhelgisgæslunar send á vettvang vélsleðaslyss ofan við Dalvík

Vélsleðaslys átti sér stað á Reykjaheiði fyrir ofan Dalvíkurbæ fyrr í dag þar sem maður slasaðist. Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú að sækja manninn sem slasaðist en lögreglan á Norðurlandi eystra óskaði eftir aðstoð þyrlu Gæslunnar á hæsta forgangi um 12 í dag. Þetta kemur fram í frétt Vísis um málið.

Ekki liggja frekar upplýsingar fyrir um slysið að svo stöddu eða hvert ástand mannsins er, sem er á fimmtugsaldri. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við fréttastofu Vísis að björgunarsveitarmenn frá Siglufirði hafi komið að manninum um klukkan tólf. Þeir séu að meta aðstæður og hvernig best sé að koma honum þaðan. Hann hafði ekki upplýsingar um hversu alvarleg meiðsl mannsins væru. Fleiri björgunarsveitir af Tröllaskaga hafa verið kallaðar út vegna slyssins.

UMMÆLI

Sambíó