Tónleikar til styrktar minningarsjóðs Þorgerðar S. Eiríksdóttur

Menningarhúsið Hof á Akureyri. Mynd: mak.is

Þriðjudaginn 27. febrúar 2018 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.
Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar, ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar, minningarsjóð til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Tónleikarnir eru helsti vettvangurinn til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Á tónleikunum koma fram nemendur á efri stigum og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.
Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum.

Sambíó

UMMÆLI