Troða upp með lögum George Michael í Hofi

Norðlenskir aðdáendur George Michael eiga von á góðu því tónlistarsýningin Celebrating George Michael kemur til Akureyrar og verður haldin í Hofi í 20. nóvember næstkomandi. Kvöldið eftir verða tónleikar í Hörpu í Reykjavík.
Flutningur Steve Mitchell, sem er almennt álitinn sem einna besti flytjandi laga George Michael í heiminum, er kraftmikill og tilfinningaríkur, þar sem hann endurskapar ekki einungis lögin heldur einnig tilfinninguna fyrir flutningi Gerge Michael á sviðinu á mismunandi tímabilum, sem sýnir tímalausa afleifð eins besta popptónlistarmanns sögunnar.
Dave West, fyrrum bassaleikari Wham!, mætir einnig til leiks, en hann starfaði með George Michael og Andrew Ridgeley í fyrstu upptökum á Wham Rap, Careless Whisper, and Club Tropicana.
Tónleikarnir Celebrating George Michael hafa tryllt áhorfendur í Bretlandi og um alla Evrópu og nú kemur hún í Hof á Akureyri þann 20. nóvember og í Hörpu kvöldið eftir, 21. nóvember.
Með í för er einnig fjögurra manna hljómsveit sem í eru öflugir tónlistarmenn sem hafa komið fram og spilað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims m.a. Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red, Kylie Minogue og mörgum fleiri. Þeir koma með reynslu og áreiðanleika á sviðið sem áhorfendur finna fyrir í hverri nótu, og tryggja að tónlist Geroge Michael sé flutt af virðingu, hjartnæmni og gæðum.
Tveir fjölhæfaríkir bakraddarsöngvarar munu koma með kraftmikinn söng og sterka nærveru á sviðið en þeir hafa komið fram með mörgum þekktum hljómsveitum og söngvurum á fjölda tónleika, allt frá gospel til reggí og rokks.
Saman munu þessir flytjendur fara í ferðalag með fræg lög í farteskinu sem spanna 35 ár af efni George Michael. Tónleikarnir munu klárlega koma áhorfendum í jólaskap með einu vinsælasta jólalagi allra tíma, Last Christmas, sem og danslögum eins og Wake Me Up Before You Go Go, Faith and Freedom! ’90 og frægum ballöðum eins Careless Whisper, Father Figure and One More Try sem gerðu George Michael að stórstjörnu um allan heim.
Tengdar greinar
Uppfært: 30. október 2026










