KIA

UN Women vilja útvega konum í Mosúl dömubindi, sápu og vasaljós – myndband

Konur í Mosúl

Konur í Mosúl

UN Women hefur hrint af stað neyðarsöfnun fyrir konur á flótta í Mosúl. Hægt er að taka þátt í söfnuninni með því að senda sms-ið KONUR í 1900. Með hverju sms-i styður þú verkefnið um 1490 kr en þannig veitir þú konum í neyð pakka með öllum helstu nauðsynjavörum á borð við dömubindi, sápu og vasaljós.

Yfir 600 þúsund konur og stúlkur eru á vergangi í Mosul og kring. Þeim sárvantar aðstoð og þeim fer fjölgandi með hverjum deginum. Konur í Mosul og nærliggjandi svæðum hafa verið innilokaðar og einangraðar síðastliðin tvö ár eftir að vígasveitir sem kenna sig við íslamska ríkið náðu borginni yfir á sitt vald. Þær hafa þurft að þola gróft ofbeldi, verið teknar sem gíslar og kynlífsþrælar og giftar hermönnum vígasveitanna en margar hafa horfið sporlaust. Þær skortir mat og aðrar nauðsynjavörur og flýja nú borgina.

„Konur í Mosul eru í hræðilegri stöðu og eiga ekkert. Þær hafa verið innilokaðar heima hjá sér undanfarin tvö ár og hvorki mátt eiga né nota síma, snjallsíma, internet, horfa á sjónvarp né eiga eiga í samskiptum við umheiminn á nokkurn hátt. Þær hafa verið sviptar lífsviðurværi sínu, reisn sinni og valdi yfir eigin lífi,”segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi á vef UN WOMEN á Íslandi.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó