Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Unnið að því að koma listnámi á háskólastigi að á Akureyri

Unnið að því að koma listnámi á háskólastigi að á Akureyri

Samtök sveitarfélag og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, skammstafað SSNE, ákváð nýverið að eitt af áhersluverkefnum samtakanna árið 2021 yrði að koma á laggirnar listnámi á háskólastigi á Akureyri. Hilda Jana Gísladóttir, formaður samtakanna og bæjarfulltrúi á Akureyri greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.

Hilda segist vonast til þess að vinna þeirra fjölmörgu sem lagt hafa lóð á vogarskálarnar undanfarin ár verði til þess að listnám á háskólastigi í bænum verði að veruleika fyrr en síðar.

„Undanfarin ár hefur oft verið rætt um mikilvægi þess að koma á laggirnar listnámi á háskólastigi á Akureyri. Komið var á starfshópi með fulltrúum listamanna, SSNE, Akureyrarstofu, Listasafnsins á Akureyri, framhaldsskóla á Norðurlandi eystra og Háskólans á Akureyri. Ýmsir spennandi valmöguleikar hafa verið ræddir og þá ekki síst mögulegt samstarf Listaháskóla Íslands og Háskólans á Akureyri,“ skrifar hún.

Stjórn SSNE hefur samþykkt 3,7 milljóna króna fjárveitingu til að undirbúa fýsileikakönnun og málþing sem stefnt er að því að halda á vordögum.

UMMÆLI

Sambíó