Úrslit í hugmyndasamkeppni Eims tilkynnt á þriðjudaginn

Frá vinstri: Val­geir Berg­mann, fram­kvæmda­stjóri Vaðlaheiðarganga, Al­bertína Friðbjörg Elías­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Eims og Jón Stein­dór Árna­son, frá Íslensk­um verðbréf­um.

EIMUR, Íslensk verðbréf og Vaðlaheiðargöng hf. bjóða til opins fundar og sýningar á úrslitaverkefnum í hugmyndasamkeppni Eims. Fundurinn fer fram í Hofi þann 13. júní klukkan 14:00. Yfirskrift samkeppninnar er nýting lághitavatns á Norðurlandi eystra. Alls bárust 14 tillögur sem verða til sýnis á fundinum.

Dómnefnd hefur valið fjórar bestu tillögurnar og munu fulltrúar hverrar þeirra halda stutta kynningu á sinni tillögu. Að lokum mun dómnefnd veita verðlaun fyrir bestu tillöguna.

Á fundinum verða einnig haldnir þrír örfyrirlestrar:
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Íslenski ferðaklasinn
– Hvað felst í ábyrgri ferðaþjónustu?

Guðrún Brynleifsdóttir, Landsvirkjun
– Tækifæri í orkutengdri ferðaþjónustu

Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkusetur
– Fjölnýting jarðvarma

Fundurinn er öllum opinn!
Tekið er á móti skráningum á mak.is og er aðgangur ókeypis.

Sambíó

UMMÆLI