Verslanir The Viking opna á nýrri kennitölu

Verslun The Viking á Akureyri. Mynd/Kaffið.is Jónatan

Ferðamannaverslanirnar The Viking hafa verið opnaðar á ný eftir að hafa verið lokaðar í tvær vikur vegna vangoldinna vörsluskatta. Eignir fyrirtækisins hafa verið færðar yfir á nýtt félag. Verslanirnar voru áður reknar und­ir kenni­tölu Hórasar ehf.
Mbl.is greinir frá því að þær hafi nú verið færðar yfir á nýtt félag. Samkvæmt Mbl sýnir kvittun úr versl­un­ Viking við Hafn­ar­stræti að þær séu nú reknar und­ir kenni­tölu fé­lag­ins H-fast­eign­ir, sem breytti virðis­auka­skatts­núm­eri úr leigu atvinnuhúsnæðis yfir í blandaða heild­versl­un um ára­mót­in. Sigurður Guðmundsson, eigandi Viking, er stjórnarmaður í báðum félögum.

Í frétt Mbl segir að eftir að innheimtumenn ríkissjóðs hafi stöðvað starfsemi fyrirtækis vegna vanskila á gjöldum geti atvinnurekstur hafist að nýju með tvennum hætti: ann­ars veg­ar með því að greiða meiri­hluta gjald­anna og hins veg­ar að flytja rekst­ur­inn yfir á nýja kenni­tölu.

Lögreglan á Akureyri og í Reykjavík lokaði öllum verslunum The Viking um miðjan janúar að beiðni tollstjóra, tveimur í Reykjavík og einni á Akureyri. Versluninni á Akureyri var lokað með lögregluinnsigli. Samkvæmt embætti tollstjóra er afar fátítt að gripið sé til slíkra aðgerða, en það er heimilt ef um er að ræða ógreidda vörsluskatta, sem eru virðisaukaskattur og staðgreiðsla.

Lögregla lokar verslun í miðbænum

Sambíó

UMMÆLI