Vilja miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri

Halla telur brýnt að setja upp miðstöð á Norðurlandi fyrir þolendur ofbeldis. Mynd Hörður Finnbogason

„Ég kallaði saman fulltrúa bæjarins, Aflsins og Háskólans á Akureyri til að ræða þetta og mér fannst vel tekið í hugmyndina. Einnig mun ég ræða við heilsugæsluna og fulltrúa Sjúkrahússins á Akureyri.“ Segir Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi, sem telur brýnt að setja upp miðstöð á Norðurlandi fyrir þolendur ofbeldis.

Á fundi velferðarráðs Akureyrarbæjar var tekið vel í hugmyndina og um mikilvægi þess að koma upp miðstöðinni. Þótt að hugmyndin sé á byrjunarstigi er útlitið bjartsýnt en Halla segir að verkefnið myndi byrja sem tilraun til skamms tíma.

„Það er nýbúið að stofna samskonar miðstöð í Reykjavík sem nefnist Bjarkarhlíð og ríkið er á meðal þeirra sem fjármagnar verkefnið. Það hefur sýnt sig að það er mikil þörf fyrir slíka miðstöð á Akureyri. Þetta er hugsað sem fyrsta stopp þolenda ofbeldis og að það geti fengið úrslausn sinna mála. Þetta er ætlað fyrir 18 ára og eldri en Barnahús hjá okkur sér um yngri einstaklinga,“ segir Halla í samtali við Vikudag. „Þarna getur fólk fengið upplýsingar um sinn rétt. Oft finnst fólki erfitt að stíga inn á lögreglustöð því þá er búið að bóka það í kerfið.“

UMMÆLI

Sambíó