10 ára barn á rafskútu varð næstum fyrir bíl á AkureyriRafskútuleigan Hopp opnaði í bænum í gær

10 ára barn á rafskútu varð næstum fyrir bíl á Akureyri

Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning í gær um að 10 ára barn hefði verið á rafskútu hjólaleigunnar Hopp sem opnaði í bænum í gær. Barnið gat ekki valdið hjólinu að fullu vegna stærðar og minnstu munaði að það yrði fyrir bifreið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Lögreglan biðlar til foreldra og forráðamanna að ræða við börn sín og brýna fyrir þeim að þau megi ekki leigja hjólin en 18 ára aldurstakmark er á öllum hjólum Hopp.

„Alla jafna telst það ekki til tíðinda að barn sé að hjóla á rafskútu. Eins er opnun þessarar leigu hér á Akureyri bara hið besta mál, fari leigutakar að reglum fyrirtækisins. Skv. reglum Hopp þurfa leigutakar að vera 18 ára og eldri til að mega leigja hjól. Viðkomandi barn var um 10 ára gamalt. Það sem gerðist var að barnið gat ekki valdið hjólinu að fullu vegna stærðar og þyngdar og við gangbraut eina hér í bæ, gerðist það að hjólið fór af stað og togaði barnið út á götuna og hársbreidd munaði að bifreið yrði ekið á barnið og þeirri bifreið var ekið á umferðarhraða, 50 km mv. klukkustund. Vegfarendur sem þetta sáu var mikið niðri fyrir vegna þessa atviks og í áfalli. Það þarf ekki að fjölyrða um hvað hefði getað gerst ef illa hefði farið,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

„Þvi viljum við beina þeim vinsamlegu tilmælum til foreldra að ræða þetta við börn sín, brýna fyrir þeim að þau megi ekki leigja þessi hjól og eins að gæta ávallt varúðar við hjólreiðar, nota alltaf reiðhjólahjálma. Með vinsemd og virðingu og von um að allt gangi sem best Lögreglan Norðurlandi eystra.“

Sambíó

UMMÆLI