10 bestu – Birgir Örn

10 bestu – Birgir Örn

Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi Maus, er nýjasti gestur Ásgeirs Ólafssonar í hlaðvarpsþáttunum 10 bestu. Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

„Biggi mætti með sín 10 lög en hann segist hafa geta mætt með 2000 lög. Að velja 10 lög er ekki hægt staðfestir hann. Við fórum yfir Maus ferilinn, Vonarstræti og Lof mér að falla handritin sem hann skrifadi. Nýja handritið sem hann er að skrifa, hvar hann kynntist konunni, tónlistina, Eyrarrokk og nýja lagið hans og sóloferilinn sem er að vakna aftur eftir hvíld. Í dag er hann er sálfræðingur sem starfar fyrir Píeta samtökin og listamaður nýfluttur norður á land með alla fjölskylduna. Við fórum einfaldlega yfir allt sem skiptir mali og engu mali. Hér er þátturinn. Takk fyrir að hlusta,“ segir Ásgeir um þáttinn.

UMMÆLI