10 bestu – Heimir Örn Árnason

10 bestu – Heimir Örn Árnason

Heimir Örn Árnason er gestur Ásgeirs Ólafssonar í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu.

„Heimir Örn Árnason er formaður bæjarráðs, þjálfari Þórs-KA og til næstum 30 ára verið þjálfari. Heimir Örn kíkti í gott spjall. Við fórum yfir feril hans í handboltanum og ég spurði hann hvers vegna hann væri með æðstu þjálfaragráðuna í handboolta ef hann ætlar ekki að nota hana. Allt opið í þeim efnum segir Heimir. Hann á þrjú börn og tók að sér nýtt hlutverk þegar hann náði oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir síðustu kosningar. „

„Ég hef þekkt Heimi lengi en hann kemur á óvart og það ætti í raun ekki að koma á óvart að hann kemur á óvart. En hann gerði það duglega í þættinum þegar hann ákvað að syngja eitt af sínum uppáhaldslögum í 10 bestu. Sá fyrsti sem gerir það. Það hefur hann aldrei gert áður.“

„Takk fyrir að hlusta.“

Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó