13 smit hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra

13 smit hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra

13 smit eru nú staðfest á Norðurlandi eystra samkvæmt nýjustu tölum frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Nýjustu tölur voru birtar kl. 13 í dag inn á covid.is.

Smituðum einstaklingum hefur fjölgað um tvo frá því gær þegar 11 voru smitaðir. Í fyrradag voru 8 smitaðir. Einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað úr 369 í 412 frá því í gær.

Á landinu öllu eru smit orðin 802 og 9889 einstaklingar í sóttkví. 734 einstaklingur eru í einangrun og 15 á sjúkrahúsi. Þá hafa 2.427 lokið sóttkví og 68 einstaklingar hafa náð bata.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

UMMÆLI

Sambíó