182 – Hvernig er að vera of þungur?

182 – Hvernig er að vera of þungur?

Gunni Nella er gestur Ásgeirs Ólafssonar í fyrsta þætti hlaðvarpsins 182. Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

„Gunni talar af ástríðu, einlægni og reynslu af því að vera of þungur og ná loksins að snúa hugsunum sínum til hins betra. Hvernig gerði hann það? Hvað olli því að hann snéri blaðinu við?Samfélagði okkar, megrunarkúrarnir og öll átökin. Er það matreitt rétt ofan í fólk sem er orðið of þungt? Hvernig getur einstaklingur náð bata í að ásaka sjálfan sig? Af hverju ásakar hann sig? Orðið Átak..?Gunni gefur rjúkandi góð ráð hvernig þú getur gert þetta. Hann hefur lesið allar bækurnar, gengið á alla veggina en er samt í dag, of þungur en kann að bera það. En það er eitthvað sem hann kunni ekki áður. Hvernig snéri hann við blaðinu?Sjálfur segist hann þó ekki vera neinn sérfræðingur. Einlægt viðtal við mann sem talar tæpitungulaust um sjálfan sig, átökin, æskuna, ástina og lífið.Takk fyrir að hlusta og deilið þættinum að vild,“ segir Ásgeir um þáttinn.

Hlaðvörp á Kaffinu eru tekin upp í Podcast Stúdíói Akureyrar

UMMÆLI