KIA

194 einstaklingar í sóttkví á Norðurlandi eystra

194 einstaklingar í sóttkví á Norðurlandi eystra

Nú eru 194 einstaklingar á Norðurlandi eystra komnir í sóttkví en í gær voru 177 einstaklingar í sóttkví.

Staðfest smit vegna kórónuveirunnar á Norðurlandi eystra eru enn tvö samkvæmt upplýsingum á covid.is þar sem nýjustu tölur frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra birtust klukkan 11.

Staðfest hafa verið smit á Akureyri og Grenivík. Þá lést ferðamaður sem var smitaður COVID-19 á Húsavík í vikunni en dánarorsök hefur ekki enn verið staðfest.

Á landinu öllu eru staðfest smit nú orðin 409.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700.Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma.Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó