Jenný Karlsdóttir sæmd riddarakrossi

Jenný Karlsdóttir sæmd riddarakrossi

Jenný Karlsdóttir, handverkskona og kennari á Akureyri, var sæmd riddarakrossi Forseta Íslands fyrir framlag sitt til varðveislu íslenskrar alþýðu- og handverksmenningar.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag.

Á árinu 2023 afhenti Jenný Karlsdóttir Safnasafninu á Svalbarðsströnd ævistarf sitt, handverkssafn sitt sem hún hefur safnað í 60 ár, þegar sumarsýning Safnasafnsins opnaði 6. maí. Jennýjarstofa opnaði í Safnasafninu á Svalbarðsströnd laugardaginn sama dag.

„Við megum ekki gleyma því að handverkið er sá menningararfur sem gerði okkur kleift að lifa af harðindi, hungur og drepsóttir,“ sagði Jenný Karlsdóttir við tilefnið. „Mér finnst virkilega gaman að fá tækifæri til að taka þátt í að koma á framfæri þessum hluta sögu okkar sem konur hafa skapað og lofa honum að skína til að vera metin að nýju fyrir eljuna, vandvirknina og listina sem handverkið er. Það sem var er grundvöllur að því sem er.“

Jenný Karlsdóttir (f. 1939) er fædd og uppalin á Akureyri þar sem hún býr. Hún er alin upp við ríka handverksmenningu og hefur alla tíð sinnt fjölbreyttu handverki með fram heimilis- og kennslustörfum. Jenný fékk snemma áhuga á munstrum. Hún hefur safnað margvíslegum munstrum og gefið út í heftum undir merkinu Munstur og menning (munstur.is). Tilgangurinn er að miðla munstrunum og gera þau aðgengileg til nýrrar sköpunar.

Sambíó

UMMÆLI